Skip to content


Maríuerla © Ingi Steinar Gunnlaugsson

Maríuerla fugl ársins 2022

Þetta árið kepptu sjö fuglategundir um titilinn Fugl ársins í keppni sem Fuglavernd stóð nú fyrir annað árið í röð.  Fimm fuglanna höfðu kosningastjóra sem unnu ötult og óeigingjarnt kynningarstarf fyrir sína smávini.  Maríuerlan kynnti sig þó sjálf með hlýlegri nærveru sinni um allt land og þurfti ekki talsmann til að sigra keppnina með yfirburðum og 21% atkvæða. Í öðru og þriðja sæti lentu hinir ólíku en glæsilegu fuglar, himbrimi og auðnutittlingur, með 14% atkvæða hvor um sig. Alls kusu 2100 mannns um fugl ársins 2022.

Maríuerlan hefur sigrað hjörtu íslendinga fyrir löngu ef marka má ljóðabrot Guðfinnu Jónsdóttur frá Hömrum (1899-1946).

Máríuerla

Sendir drottins móðir, Maríá,

mildar gjafir himni sínum frá.

Flaug úr hennar hendi vorsins perla,

heilög dúfa, lítil maríuerla.

 

Létt á flugi, kvik og fjaðurfín

flýgur hún um auðan geim til þín.

Í veggnum þínum vill hún hreiður búa,

varnarlaus á þína miskunn trúa.

 

Dável svarta húfan henni fer,

hneigir kolli ákaft fyrir þér.

Strá úr veðurbörðu, bleiku sefi

ber hún eins og friðargrein í nefi.

 

Sérhvert vor um varpa og bæjarhól

vappar söngvin erla á gráum kjól,

flögrar eins og bæn um geiminn bláa,

bæn fyrir hinum varnarlausa smáa.

Í hópi þeirra 20 tegunda sem tóku þátt þetta árið eru auðnutittlingur, hrossagaukur, jaðrakan, lóuþræll, músarrindill, rjúpa og skógarþröstur sérstakar deilitegundir, sem þýðir að þær eru einskonar staðbundin fjölskylda sem verpur að stærstu eða öllu leiti hér á landi og hefur þróað með sér útlit frábrugðið öðrum stofnum.

Þá eru þó nokkrar tegundir af þessum tuttugu á válista hér á landi samkvæmt Náttúrufræðistofnun Íslands: Lundi er í bráðri hættu, kjóinn er í hættu, himbrimi, hrafnkríasúla og toppskarfur í nokkurri hættu og að lokum eru rjúpa og silfurmáfur í yfirvofandi hættu.

Fuglavernd óskar Íslendingum til hamingju með Maríuerluna, Fugl ársins 2022!

Fuglar ársins 2022

Þessir tóku þátt í forvalinu um fugl ársins 2022.
Auðnutittlingur – himbrimi –  hrafn – hrossagaukur – jaðrakan – kría  og maríuerla
komust áfram.

Um verkefnið

Viltu styðja fuglavernd á Íslandi?

Með frjálsu framlagi eða með því að gerast félagi í Fuglavernd.

styðja fuglavernd